Við misstum boltann

Borgarfulltrúar hafa að undanförnu fengið mörg skilaboð frá foreldrum barna í Fossvogsskóla. Við heyrum um óánægju þeirra með upphaf þessa skólaárs, óvissuna sem þau búa við og að þeim finnst, skort á skilningi Reykjavíkurborgar á aðstæðum þeirra.

Það verður að viðurkennast að þetta ferli sem Fossvogsskóli hefur farið í gegn um á þessu kjörtímabili og því síðasta, vegna rakaskemmda og myglu, hefur ekki verið gott. Of mikið hefur einkennst af samskiptaskorti við foreldra og tregðu sem hefur grafið undan trausti foreldranna í hverfinu. Trausti sem við þurfum nú að byggja upp á nýtt.

Upplýsingaflæðið þarf að vera betra

Sem formaður borgarráðs stóð ég í þeirri trú að verkefnið væri í góðum farvegi eftir að málin voru tekin föstum tökum í borgarráði í mars sl. Þá var ákveðið var að mynda verkefnastjórn með sérfræðingum, fulltrúum borgarinnar og foreldrum. Hóp sem innihélt fulltrúa frá verkfræðistofunni Eflu, að ósk foreldra. Verkefni þessarar verkefnastjórnar var að tryggja aðkomu allra að verkefninu, gott upplýsingaflæði og faglega og góða ákvarðanatöku.

Í lok júlí samþykkti borgarráð svo að nemendur í 1.-3. bekk myndu stunda nám í færanlegum húsum á lóð skólans, að ósk foreldra, í stað þess að þessir nemar færu daglega með rútu í Korpuskóla í allan vetur.

Við, í pólitíkinni héldum að þetta ferli gengi vel, í fullri sátt við foreldra barna í skólanum, þar til fréttir bárust af skólabyrjun í síðustu viku. Þarna misstum við boltann. En hratt var brugðist við og ég vona að sú lausn sem komið var niður á sé ásættanleg til skamms tíma. Grenndarkynningu á að ljúka á morgun, miðvikudaginn 25. ágúst. Ef engar athugasemdir berast verður trúlegast hægt að gefa út byggingaleyfi í næstu viku. Ef athugasemdir berast þarf auðvitað að bregðast við. Börn í 2. og 3. bekk geta því vonandi innan fárra vikna komið aftur á Fossvogssskólalóðina.

Við þurfum að taka faglegar á myglumálum

Mygla getur komið upp í öllu húsnæði borgarinnar, ekki bara í skólunum. Reykjavík þarf því að vera undirbúin undir það að takast á við breytingu á starfsemi þegar upp koma rakaskemmdir og mygla í mjög mismunandi umhverfi.

Við þurfum að taka faglegar á slíkum málum. Því töldum við rétt að leggja það fyrir borgarráð að búinn yrði til nýr vinnsluferill sem yrði fylgt þegar upp koma myglumál í fasteignum borgarinnar. Þessi nýi ferill er á lokametrunum og verður vonandi kynntur í byrjun september.

Þessi nýi ferill mun ekki taka til baka þann tíma sem foreldrar og starfsmenn í Fossvogsskóla hafa varið til að berjast fyrir bættum og heilnæmari skóla. En Reykjavíkurborg þarf að passa að sami vandi komi ekki upp í öðru húsnæði. Myglumál eru verulega flókin og mikilvægt að setja slík mál strax í öruggt og gott ferli. Ábyrgð á verkefnum þarf að vera skýr. Taka þarf á samhæfingu á milli fagsviða. Og tryggja þarf að allir starfi vel saman og að upplýsingar berist með bættri samskiptaáætlun. Á þetta hefur skort í Fossvogsskóla og við verðum, og við viljum, gera betur.

Allt samfélagið þarf að bregðast við vaxandi mygluvanda

Annar lærdómur í Fossvogsskólamálinu snýr að því hvernig tekið er á myglu almennt. Við þurfum betri leiðbeiningar frá umhverfisráðuneyti um hvernig meta skuli óheilbrigt loft í húsum og hvenær þurfi að bregðast við. Það er víða gró í húsum en það skiptir máli hvar hún er, um hvernig gró er að ræða og hversu mikið af henni er. Þarna þarf Heilbrigðiseftirlitið skýrari leiðbeiningar til að fylgja.

Einnig þurfa Heilbrigðisráðuneyti og Landlæknir að birta leiðbeiningar heilbrigðisyfirvalda um meðhöndlun einstaklinga með einkenni vegna myglu.

Þetta segi ég ekki til að varpa neinni ábyrgð frá Reykjavíkurborg. Við sjáum, af tíðum fréttum af rakavandamálum og myglu í opinberum byggingum um allt land, að þetta er viðvarandi vandamál sem þarf að takast á við og hafa alla ferla klára. Þá er einnig að finna raka og myglu í húsnæði í einkaeigu. Heilsugæslur um allt land þurfa að geta gripið einstaklinga með einkenni vegna þessa vanda og vísað í rétta meðhöndlun.

Hér er því verk að vinna og við verðum að gera það vel. Því hér er heilsa og líf fólks undir.

Greinin birtist fyrst á Vísi 24. ágúst 2021