leikskólar

Við brúum bilið

Við samþykktum í borgarráði í morgun áætlun um að fjölga verulega leikskólarýmum á næstu mánuðum og misserum. Á árunum 2021 og 2022 munu enn fleiri börn fæðast í Reykjavík en gert var ráð fyrir. Það er bara dásamlegt að fá fleiri börn en við þeirri fjölgun þarf að bregðast til að veita barnafólki góða þjónustu í Reykjavík. Það er ekki nóg að vera með ódýrustu leikskólagjöldin meðal stærstu sveitarfélaga landsins.

Því verða 850 ný leikskólarými opnuð í ár, bæði með því að fjölga rýmum í núverandi leikskólum og með því að opna sjö nýja leikskóla. Alls er gert ráð fyrir að leikskólarýmum fjölgi um 1680 á næstu þremur árum.

12 mánaða börnum boðin vistun í haust

Með þessari áætlun gerum við ráð fyrir að geta boðið öllum 12 mánaða börnum leikskólapláss í haust. Þegar búið er að taka við 12 mánaða börnum teljum við að um 260 laus rými verði til ráðstöfunar, þar sem hægt verður að bjóða börnum sem verða 12 mánaða síðar á árinu eða í byrjun næsta árs. Með þessu skrefi mun meðalaldur barna við inntöku lækka í 15 mánaða úr 19 mánuðum.

Börn í leikskólum í sínu hverfi

Um 90% barna sækja leikskóla í sínu hverfi. Og flestir foreldrar vilja að barnið sæki leikskóla í heimahverfi sínu og myndi tengsl við önnur börn í hverfinu. Það á því að vera takmark okkar að byggja upp leikskóla í þeim hverfum þar sem þörfin er mest. Og það er skynsamlegt að eitthvað af leikskólabyggingunum verði færanlegar, til þess að færa þær þangað sem þörfin er mest. Þegar að barnasprengjur færast á milli hverfa, þurfa leikskólarnir að fylgja með.

Líka fjölgun í sjálfstæðum leikskólum

Það sem af er kjörtímabilsins hafa 430 leikskólapláss bæst við í leikskólum Reykjavíkur. Þá hefur fjölgað um 133 leikskólarými í sjálfstætt reknum leikskólum. Sjálfstætt starfandi leikskólar eru mikilvæg viðbót við leikskólana hér í Reykjavík. Viðreisn í Reykjavík styður sjálfstæða skóla og vill gjarnan að þeim fjölgi. Við höfum séð að sjálfstætt reknir leikskólar eru vel reknir og veita góða þjónustu. Því á Reykjavík nú í viðræðum við þessa leikskóla um að fjölga leikskólaplássum.

Starfsfólki fjölgar

Við þurfum starfsfólk til að sinna börnunum. Allra helst þurfum við í Reykjavík fleiri faglærða starfsmenn af öllum kynjum. Á þessu kjörtímabili hefur verið ráðist í fjölþættar aðgerðir til að bæta starfsaðstæður á leikskólum og gera það meira aðlaðandi að starfa, til langs tíma, á leikskólum. Stöðugildum hefur fjölgað um 350 á þessu kjörtímabili, börnum á hvern starfsmann hefur fækkað og undirbúningstímar leikskólakennara hafa fjölgað. Kjör leikskólakennara hafa batnað verulega og það er ánægjulegt að sjá að nemum í leikskólakennaranámi hefur fjölgað. Að auki hefur Reykjavík ráðist í aukinn stuðning við stjórnendur við ráðningar og starfsmannamál.

Við í Viðreisn í Reykjavík höfum allt þetta kjörtímabil lagt áherslu á að brúa bilið, bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Við vitum að það er mikilvægt fyrir foreldra og gerir Reykjavík að enn fjölskylduvænna samfélagi. Þannig borg viljum við byggja.

Greinin birtist fyrst á Vísi 3. mars 2022